
Gabríella Kamí er 11 ára og Anika Rós er 9 ára.
Við erum báðar fæddar í janúar en minnstu munaði að við kæmum sama dag.
Sem betur fer þá lét Anika bíða eftir sér eins og Gabríella gerði nú líka og þannig að við eigum því okkar eigin afmælisdag.
Gabríella Kamí á afmæli 14 og Anika Rós á afmæli 19.
Þegar Anika fæddist þá kom í ljós að við erum með sjaldgæft heilkenni sem heitir Goldenhar syndrome.
Eftir að það var búið að greina okkur báðar tók við langt ferli við að fá hjálp, það hófst samt á endanum.
Mamma og pabbi voru samt ekki alveg á því að gefast upp og í dag fáum við þá hjálp sem okkur vantar. Þurftum reyndar að leita alla leið til Boston eftir henni.
Það er nú ekkert sem hamlar okkur því við erum einstaklega skapgóðar og skapmiklar.
Við eigum alveg ferlega duglegan og góðan pabba sem því miður verður að vinna alveg rosalega mikið og við erum hetjurnar hennar mömmu.
Við erum í meðferð og aðgerðum í Boston og erum búnar að fara út í 20 ferðir. Tryggingarstofnun hefur tekið þátt í hluta ferðanna en mamma og pabbi hafa greitt mikin hluta af þeim fyrir okkur.
